Meditation instructor at Anda Inn

Nálgunin okkar

Veldu hvernig þig langar að líða

Anda Inn snýst um að tengjast okkar innri visku og fá hugmyndir – með því að læra hugleiðslu, öndunaraðferðir og dýpri líkamsmeðvitund.

Hugurinn verður skýrari, einbeitingin eykst, hugmyndirnar fara að flæða og við förum að finna betur hvað lætur okkur líða vel.

Allt í einu fer lífið að meika meiri sens.

Veldu heimsóknina sem hentar liðinu þínu best — eða hafðu samband og við finnum út úr því saman.

Heimsóknir og námskeið

Hvað er í boði?


30 mín

Innblástur

Stutt, skemmtileg og áhrifamikil heimsókn sem gefur okkur innsýn í hvernig hugleiðsla, öndun og líkamsmeðvitund getur opnað á dýpri einbeitingu, innsæið, nýjar hugmyndir og vellíðan. Við förum saman í einfaldar æfingar sem allir geta gert og fléttað inn í sitt daglega líf. Fullkomið sem morgunkaffi eða uppbrot á vinnudegi.

60 mín

Innri viska

Áhugaverð og fersk nálgun inn í heim athyglinnar. Við köfum ofan í hugleiðsluaðferðir og æfingar, lærum að komast meðvitað í flæði við vinnu og sköpun og fáum skýrari fókus. Kynnumst taugakerfinu og hvernig það stjórnar streitunni okkar. Við lærum tækni til að tengja við hvað líkaminn og innsæið eru að segja okkur.

4×45 mín

Andleg líkamsrækt

Fjögurra vikna námskeið sem byggir þig upp innanfrá – andlegt þrek, einbeiting, hugmyndauðgi og ró. Fullkomin blanda af virkni og slökun. Við lærum nokkrar gerðir af hugleiðslu og öndun, en skoðum líka hvernig við getum gert langtíma breytingar með því að læra á taugakerfið og streitu. Við æfum innsæi og ræktum sjálfsmeðvitund með því að læra að vera í okkar nattúrulega takti.