Almennt

Anda inn, kt. 660614-0790, áskilur sér rétt til að fella úr gildi, án fyrirvara, pantanir vegna mistaka við verðskráningu og ef vara eða þjónusta er tekin úr sölu. Kaupandi skuldbindur sig til að greiða vöru og þjónustu að fullu við kaup.


Afhending

Aðgangur að námskeiðinu opnast tafarlaust eftir staðfestingu greiðslu. Námskeiðið er aðgengilegt í gegnum vefsíðu Anda inn.


Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Stafræn námskeið eru aldrei endurgreidd. Með því að ljúka kaupum staðfestir kaupandi að hann fái tafarlausan aðgang að stafrænu efni og skilur að 14 daga afturkallingarréttur fellur niður.

Ef upp koma tæknilegar villur sem koma í veg fyrir aðgang að námskeiðinu skaltu hafa samband gegnum hildur@andainn.is og við munum finna lausn á málinu.


Trúnaður seljanda

Anda inn heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.


Trúnaður kaupanda

Allt efni námskeiðsins — þar með talið myndbönd, hljóðskrár og textar — er eign Anda inn og er verndað af höfundarréttarlögum. Allt efni er eingöngu fyrir persónulega notkun kaupanda. Það er með öllu óheimilt að deila efni, hvort sem um ræðir að hluta til eða í heild, afrita það, selja áfram eða gera opinbert á nokkurn hátt. Brot á þessum skilmálum telst þjófnaður og leiðir til að kaupanda verður meinaður frekari aðgangur að námskeiðinu. Engu að síður er kaupandi bundinn til að greiða fyrir þjónustuna að fullu.


Fyrirvari um niðurstöður

Anda inn ber ekki ábyrgð á niðurstöðum sem kunna að koma eða ekki koma í kjölfar þátttöku í námskeiðinu. Námskeiðið kemur ekki í staðinn fyrir faglega heilbrigðisþjónustu eða sálfræðilega ráðgjöf.


Allur réttur áskilinn

Ekki má dreifa efni þessu með neinum hætti nema með skriflegu leyfi höfundar.


Anda inn 

Hildur ehf, kt. 660614-0790

hildur@andainn.is

http://www.andainn.is