Hæ, ég heiti Hildur Kristín

og ég stofnaði Anda inn 2025 út frá því að hafa sjálf gengið í gegnum kulnun og þurft að endurskoða lífið.

Ég hef lengst af starfað sem tónlistarkona og kennt sköpun en nýlega kláraði ég jógakennaranám eftir að hafa uppgötvað hugleiðslu og líkamsmeðvitund sem mögnuð tól til að bæta andlega heilsu og minka streitu.

Markmið Anda inn er að hjálpa fólki að tengjast innri visku, bæta andlega heilsu, sporna við kulnun og bæta einbeitingu og sköpunarkraft. Ástríða mín liggur helst í hugleiðslu, andlegri heilsu, öndun, taugakerfinu og hagnýtum ráðum til að breyta líðan okkar dag daglega. Ég t´rúi því að allir geti lært að hugleiða, enda er ég sjálf greind með ADHD og ef ég gat þetta, þá getur þú þetta.

Hvað gerir Anda inn?

Anda inn byrjaði sem fræðslumyndbönd á samfélagsmiðlum en í dag heldur Hildur fyrirlestra og námskeið fyrir fyrirtæki og hópa ásamt því að kenna hugleiðslu gegnum netnámskeið.