Mig langar að kenna þér það sem breytti lífi mínu.
Ég veit að hugleiðsla er fyrir marga eins og tilhugsunin að ganga upp á risastórt fjall. Við vitum að þetta mun vera gott þegar við erum búin, en tilhugsunin er oft erfiðasti parturinn. Okkur finnst við ekki nógu vel undirbúin. Hugurinn fer í allar þær áttir sem hann á ekki að fara, og við fáum á heilann að við eigum ekki nógu góða gönguskó.
En mig langar, með jákvæðri og skemmtilegri nálgun og góðum tólum, að kenna þér að þú getur náð þessu miklu hraðar en þú bjóst við.
Ég trúi því að allir geti lært að hugleiða, þar sem ég er sjálf greind með ADHD og með öran huga. Ég myndi segja að hugleiðsla hafi verið betri en nokkur lyf sem ég hef tekið.
Á þessum 10 dögum
Á þessum 10 dögum förum við í mismunandi aðferðir til þess að hugleiða, svo þú getir fundið það sem hentar þér best. Við skoðum líka hugmyndafræðina bakvið þær og af hverju þær virka.
Það sem er innifalið:
— 10 kennslustundir
— 10 leiddar hugleiðslur
— Upprifjanir
— Undirbúningsdagur
Eftir 10 daga ertu komin með grunn, skilning og þekkingu á mismunandi aðferðum svo að þú getir haldið iðkun þinni áfram af sjálfstrausti. Þú verður líka farin að finna jákvæðar breytingar sem gera það að verkum að þú ferð frá því að vera forvitinn yfir í að finna betri tengingu við innri viskuna þína.
Er þetta fyrir mig?
Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja ná betri tökum á hugsunum sínum og andlegri heilsu — hvort sem það er kvíði, þunglyndi, ADHD, svefnvandi, eða einfaldlega forvitni um að þjálfa hugann á nýjan hátt. Það er líka fyrir þau sem vilja skýrari hugsanir, meira flæði hugmynda, og betri tilfinningastjórnun.
Verð: 16.900 kr.
Þú færð aðgang að námskeiðinu um leið og þú hefur borgað. Það er inni á kennslusíðu þar sem allt efni er aðgengilegt á sama stað. Aðgangur að námskeiðinu svo lengi sem þú vilt.
Hugleiðsla breytti lífi mínu
og mig langar að hjálpa þér að upplifa það sama.